Sjúkraflutningamenn
Starfsréttindi sjúkraflutningamanna Réttur til að kalla sig sjúkraflutningamann og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 504/1986 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraflutningamanna með áorðnum breytingum. Reglugerðin er sett með stoð í lögum nr. 24/1985 um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.
Leyfi er veitt þeim sem hafa menntun á sviði sjúkraflutninga sem Landlæknisembættið metur gilda. Menntun sjúkraflutningamanna skal vera:
- Á sviði mannbjörgunar.
- Meðferð og flutningar sjúkra og slasaðra.
- Akstur sjúkrabifreiða, meðferð þeirra og eftirlit með búnaði.
Áður en leyfi er gefið út er leitað álits Landssambands sjúkraflutningamanna á hæfni umsækjanda.
- Umsækjendur um starfsleyfi sjúkraflutningamanna þurfa að skila inn staðfestu ljósriti af prófskírteini frá Sjúkraflutningaskólanum.
- Umsækjendur með erlend sjúkraflutningapróf þurfa, auk staðfests ljósrits af prófskírteini, að skila inn upplýsingum um námið, þ.e. innihaldslýsingum einstakra námskeiða á íslensku eða ensku.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda ráðuneytinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 21. janúar 2010