Sjóntækjafræðingar
Starfsréttindi sjóntækjafræðinga
Réttur til að kalla sig sjóntækjafræðing og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í lögum nr. 17/1984 um sjóntækjafræðinga með áorðnum breytingum og í reglugerð nr.1043/2004 um menntun sjóntækjafræðinga og takmarkanir á heimild þeirra til sjónmælinga og í reglugerð nr. 626/2005 um 1. breytingu á þeirri reglugerð.
Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi frá skólum sem viðurkenndir eru sem slíkir af heilbrigðisstjórn þess lands sem námið er stundað í. Leitað er umsagnar læknadeildar Háskóla Íslands og Félags sjóntækjafræðinga áður en starfsleyfi sjóntækjafræðings er gefið út.
Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini. Umsækjendur sem lokið hafa námi erlendis þurfa auk þess að skila inn nánari upplýsingum um námið eða staðfestu ljósriti af erlendu starfsleyfi ef því er til að dreifa.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 5.500.- en kr. 1.350.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 31. apríl 2008