Sálfræðingar


Starfsréttindi sálfræðinga

Réttur til að kalla sig sálfræðing hér á landi er skilgreindur í lögum nr. 40/1976 um sálfræðinga. Með þessum lögum voru málefni sálfræðinga flutt frá menntamálaráðuneytinu til heilbrigðisneytis. Skilyrði fyrir útgáfu sérfræðileyfa sálfræðinga eru tilgreind og skýrð í reglugerð nr. 158/1990 um sérfræðileyfi sálfræðinga.

Fylgiskjöl
Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja:

  • Staðfest ljósrit af prófskírteini yfir allar prófgráður.
  • Námslýsing frá menntastofnunum sem viðkomandi hefur stundað nám við.
  • Staðfestur listi yfir námskeið sem viðkomandi hefur sótt, heiti þeirra, innihaldslýsing, tímalengd og vægi.
  • Vottorð frá menntastofnun eða öðrum um að námið veiti starfsréttindi sem sálfræðingur í námslandi.
  • Sakavottorð.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöð opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.


Uppfært 21. janúar 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli