Næringarrekstrarfræðingar
Starfsréttindi næringarrekstrarfræðinga Réttur til að kalla sig næringarrekstrarfræðing og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 873/2006 um menntun, réttindi og skyldur næringarrekstrarfræðinga á heilbrigðisstofnunum. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa BSc prófi í næringarrekstrarfræði frá háskóla sem viðurkenndur er af Landlæknisembættinu og heilbrigðisyfirvöldum þess lands þar sem námið er stundað. Leitað er umsagnar Félags næringarrekstrarfræðinga áður en starfsleyfi næringarrekstrarfræðings er veitt.
Um umsækjendur frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og Sviss gildir reglugerð nr. 244/1994 (pdf - opnast í nýjum glugga) með síðari breytingum, um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta o.fl. skv. ákvæðum EES-samningsins.
Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini. Umsækjendur sem lokið hafa námi erlendis þurfa auk þess að skila inn nánari upplýsingum um námið.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis.Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 21. janúar 2010