Næringarráðgjafar


Starfsréttindi næringarráðgjafa

Réttindi til að kalla sig næringarráðgjafa og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 51/2007 um starfsheiti og starfsréttindi næringarráðgjafa. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa BSc prófi í næringarfræðum eða sambærilegu háskólaprófi og a.m.k. eins árs framhaldsnámi í næringarráðgjöf þar sem hluti náms er starfsmenntun á sjúkahúsi eða heilbrigðisstofnun. Leitað er umsagnar Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands áður en starfsleyfi næringarráðgjafa eru gefin út.

Um umsækjendur frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og Sviss gildir reglugerð nr. 244/1994 (pdf - opnast í nýjum glugga) með síðari breytingum, um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta o.fl. skv. ákvæðum EES-samningsins.

Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini. Umsækjendur sem lokið hafa námi erlendis þurfa auk þess að skila inn nánari upplýsingum um námið.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.


Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.

 

Uppfært 21. janúar 2010

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli