Næringarfræðingar
Starfsréttindi næringarfræðinga
Réttur til að kalla sig næringarfræðing og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 50/2007 um starfsheiti og starfsréttindi næringarfræðinga. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa MSc prófi í næringarfræði frá Háskóla Íslands eða sambærilegu háskólaprófi í næringarfræðum. Áður en starfsleyfi næringarfræðings er gefið út er leitað umsagnar Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands.
Um umsækjendur frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og Sviss gildir reglugerð nr. 244/1994 (pdf - opnast í nýjum glugga) með síðari breytingum, um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta o.fl. skv. ákvæðum EES-samningsins.
Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini. Umsækjendur sem lokið hafa námi erlendis þurfa auk þess að skila inn nánari upplýsingum um námið.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 21. janúar 2010