Náttúrufræðingar

Starfsréttindi náttúrufræðinga í heilbrigðisþjónustu

Réttindi til að kalla sig og starfa sem náttúrufræðingur í heilbrigðisþjónustu hér á landi eru skilgreind í reglugerð nr. 272/1991 um menntun, réttindi og skyldur náttúrufræðinga, sem starfa á sérhæfðum rannsóknarstofum heilbrigðisstofnana.

Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa BSc prófi í líffræði eða sambærilegu háskólaprófi í raungreinum með höfuðáherslu á greinar heilbrigðisvísinda (medical science) auk eins árs starfsþjálfunar á sérhæfðum rannsóknastofum heilbrigðisstofnana eða framhaldsmenntunar í greinum heilbrigðisvísinda. Áður en starfsleyfi náttúrufræðings í heilbrigðisþjónustu er veitt er leitað umsagnar Félags íslenskra náttúrufræðinga.

Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini. Umsækjendur sem lokið hafa prófi erlendis þurfa auk þess að skila nánari upplýsingum um námið.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.


Uppfært 21. janúar 2010

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli