Matvælafræðingar
Réttur til að kalla sig matvælafræðing og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 432/1987 um starfsheiti og starfsréttindi matvælafræðinga með áorðnum breytingum. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa BSc prófi í matvælafræðum frá Háskóla Íslands. Einnig má veita þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi erlendis starfsleyfi hér á landi, en í þeim tilvikum skal umsækjandi sanna þekkingu sína í íslenskri matvælalöggjöf og geta mælt og ritað íslenskt mál sé um erlenda ríkisborgara að ræða. Áður en slík leyfi eru veitt er leitað umsagnar Matvæla- og næringafræðingafélags Íslands og þeirrar deildar Háskóla Íslands þar sem matvælafræði er kennd.
Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini, en auk þess þurfa umsækjendur sem lært hafa erlendis að skila inn nánari upplýsingum um námið.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 14. desember 2011