Matartæknar
Starfsréttindi matartækna
Réttindi til að kalla sig matartækni og starfa sem slíkur hér á landi eru skilgreind í reglugerð nr. 27/1989 um matartækna með áorðnum breytingum. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi á matvælatæknibraut fjölbrautaskóla eða öðru prófi sem heilbrigðisyfirvöld viðurkenna. Einnig má veita þeim leyfi sem lokið hafa hliðstæðu námi erlendis, en áður en slík leyfi eru veitt er leitað umsagnar Félags matartækna.
Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini. Þeir sem stundað hafa nám erlendis skulu auk þess skila nánari lýsingu á náminu og staðfestu ljósriti af starfsleyfi ef því er til að dreifa.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 21. janúar 2010