Læknaritarar
Réttur til að kalla sig læknaritara og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 161/1987 um menntun, réttindi og skyldur læknaritara með áorðnum breytingum. Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi í læknaritun samkvæmt námsskrá sem heilbrigðisráðuneytið samþykkir. Leyfi má einnig veita þeim sem lokið hafa námi frá skólum erlendis sem viðurkenndir eru af heilbrigðisyfirvöldum viðkomandi lands, en áður en leyfi er gefið út er leitað umsagnar Félags íslenskra læknaritara.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.
Uppfært 21. janúar 2010