Læknar
Réttur til að stunda lækningar og kalla sig lækni hér á landi er skilgreindur og skýrður í læknalögum nr. 53/1988 með áorðnum breytingum og í reglugerð nr. 305/1997 um veitingu lækningaleyfa og sérfræðileyfa með áorðnum breytingum.
Almennt lækningaleyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi frá læknadeild Háskóla Íslands (HÍ) og viðbótarnámi í heilbrigðisstofnunum hér á landi skv. reglugerð nr. 305/1997 um veitingu lækningaleyfa og sérfræðileyfa. Læknakandídat þarf samkvæmt reglugerðinni að hafa unnið aðstoðarlæknisstörf í samtals 12 mánuði, þar af 4 mánuði á lyfjadeild, 2 mánuði á handlækningadeild og 3 mánuði á heilsugæslustöð. Einnig má ljúka viðbótarnáminu erlendis við heilbrigðisstofnanir sem fullnægja skilyrðum læknadeildar HÍ og landlæknis.
EES og Sviss. Læknar frá löndum sem eru aðilar að samningi um Evrópskt efnahagssvæði (EES) eða stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu geta fengið staðfestingu landlæknis á lækningaleyfi sínu. Um staðfestingu á prófskírteinum lækna frá landi sem á aðild að EES-samningnum og Sviss gildir reglugerð nr. 244/1994 (pdf opnast í nýjum glugga) um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta o.fl., skv. ákvæðum EES-samningsins.
Utan ESS og Sviss. Leyfi er einnig veitt þeim sem lokið hafa prófi sem talið er sambærilegt prófi frá læknadeild HÍ, í landi utan hins Evrópska efnahagssvæðis og í Sviss, séu skilyrði um viðbótarnám við heilbrigðisstofnanir einnig uppfyllt.
Áður en lækningaleyfi er gefið út er leitað umsagnar landlæknis og læknadeildar Háskóla Íslands, en óheimilt er skv. læknalögum að veita lækningaleyfi ef landlæknir eða læknadeild telja umsækjanda óhæfan.
Tímabundið lækningaleyfi. Ráðherra má eftir meðmælum landlæknis fela læknakandídötum eða læknanemum sem lokið hafa 4. árs námi, að gegna tilgreindum læknisstörfum tímabundið á heilsugæslustöð og hefur viðkomandi þá lækningaleyfi meðan hann gegnir þeim störfum. Umsóknum um tímabundið lækningaleyfi skal beina til landlæknis.
Sérfræðileyfi lækna (opnast í nýjum glugga)
Fylgiskjöl
- Umsækjendur með læknapróf frá Háskóla Íslands skulu skila staðfestu ljósriti af prófskírteini sínu og staðfestingu á að viðbótarnámi á heilbrigðisstofnunum sé lokið, ásamt undirritaðri umsókn um lækningaleyfi.
- Umsækjendur frá löndum innan EES skulu, ásamt undirritaðri umsókn um lækningaleyfi, skila staðfestu ljósriti af prófskírteini, staðfestu ljósriti af lækningaleyfi, Letter of Good Standing, sem er staðfesting á að leyfið sé í gildi, vottorði um að þeir uppfylli læknatilskipun EES og staðfestu ljósriti af vegabréfi. Einnig geta þeir þurft að skila staðfestingu á starfsreynslu.
- Umsækjendur frá löndum utan EES og Sviss þurfa auk ofangreindra gagna að skila nákvæmum námslýsingum auk þess sem staðfesting þarf að berast til Landlæknisembættisins frá skólanum um að viðkomandi hafi lokið prófi þaðan. Umsækjendur þurfa að auki að standast próf sem lögð eru fyrir af læknadeild HÍ, en prófin eru á íslensku.
Útfylltar umsóknir um lækningaleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um almennt lækningaleyfi og/eða sérfræðileyfi (doc 292 KB)
- Umsókn um staðfestingu á erlendu lækningaleyfi/sérfræðileyfi (doc 290 KB)
- Vottorð um lækningaleyfi (doc 255 KB)
- Tímabundið lækningaleyfi (pdf)
Umsókn um vottorð vegna lækningaleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is
Uppfært 21. janúar 2010