Lyfjatæknar

Starfsréttindi lyfjatækna

Réttur til að kalla sig lyfjatækni og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 199/1983 um starfsréttindi og starfssvið lyfjatækna með áorðnum breytingum.

Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi frá lyfjatæknabraut framhaldskóla sem metið er gilt af heilbrigðisyfirvöldum.

Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini auk staðfestingar frá kennslustjóra Fjölbrautaskólans við Ármúla um að viðkomandi hafi lokið bæði bóklegu og verklegu námi lyfjatæknis.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is

 

Uppfært 21. janúar 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli