Lyfjafræðingar


Starfsréttindi lyfjafræðinga

Réttur til að kalla sig lyfjafræðing og starfa sem slíkur hér á landi, er skilgreindur í lögum um lyfjafræðinga nr. 35/1978. Skilyrði fyrir sérfræðingsleyfi eru skilgreind í reglugerð um veitingu sérfræðingsleyfa handa lyfjafræðingum nr. 449/1978.

Um umsækjendur frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og Sviss gildir reglugerð nr. 244/1994 (pdf) með síðari breytingum, um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta o.fl., skv. ákvæðum EES-samningsins.

Fylgiskjöl

  • Umsækjandi um starfsleyfi þarf að skila staðfestu ljósriti af prófskírteini og staðfestingu á 9 mánaða starfsþjálfun, þar af 6 mánuði á námstíma, við framleiðslu lyfja, tilbúning, merkingu og afgreiðslu, eða önnur lyfjafræðistörf hér á landi. Hafi viðkomandi lokið námi erlendis þurfa einnig að fylgja upplýsingar um námið, þ.e. innihaldslýsingar einstakra námskeiða.

  • Lyfjafræðingar frá löndum innan EES og Sviss þurfa auk prófskírteina að skila staðfestu ljósriti af leyfi, Letter of Good Standing, vottorði um að þeir uppfylli kröfur EES (á ensku) og staðfestu ljósriti af vegabréfi.

  • Lyfjafræðingar frá löndum utan EES þurfa að skila inn upplýsingum um allt nám sem þeir hafa stundað í greininni.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest í sendiráðum, hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.


ATH. Umsóknareyðublöð opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu  í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.

ATH. Leyfi til lyfjasölu eru afgreidd hjá velferðarráðuneytinu.

 

Aðstoðarlyfjafræðingar

Landlæknisembættið vekur athygli á að þar sem aðstoðarlyfjafræði er ekki lengur kennd við Háskóla Íslands eru starfsleyfi aðstoðarlyfjafræðings ekki lengur veitt.

Ákvæði í II. kafla laga nr. 35/1978 um lyfjafræðinga, þar sem fjallað er um starfsréttindi aðstoðarlyfjafræðings, eru þó enn í gildi. Samkvæmt þeim er því unnt að sækja um um vottorð vegna starfsleyfis aðstoðarlyfjafræðings og skal skila umsóknum um það til Landlæknisembættisins. Einnig má senda umsóknir sem viðhengi í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is

Fyrir vottorðið þarf að greiða kr. 2.000.- og verður greiðsluseðill sendur umsækjanda við afgreiðslu þess.

Tímabundið leyfi
Enda þótt starfsleyfi aðstoðarlyfjafræðinga séu ekki lengur veitt getur lyfjafræðinemi, sem lokið hefur fjórða árs námi og tveggja mánaða verknámi í lyfjabúð, sótt um leyfi til að gegna störfum lyfjafræðings tímabundið, enda sé slíkt gert á ábyrgð lyfjafræðings í viðkomandi lyfjabúð. Er þetta í samræmi við 29. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 og 47. gr. reglugerðar nr. 426/1997 um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir.

Umsóknum um leyfi til að gegna störfum aðstoðarlyfjafræðings tímabundið ber að skila til Lyfjastofnunar, Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík.

Uppfært 24. maí 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli