Ljósmæður


Starfsréttindi ljósmæðra

Réttur til að kalla sig ljósmóður og stunda ljósmóðurstörf hér á landi er skilgreindur í ljósmæðralögum nr. 67/1984 með áorðnum breytingum.

Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa embættisprófi í ljósmóðurfræði frá Háskóla Íslands og prófi í ljósmæðrafræðum frá Ljósmæðraskóla Íslands. Um staðfestingu á prófskírteinum umsækjenda frá landi sem er aðili að samningi um Evrópskt efnahagssvæði og Sviss, gildir reglugerð nr. 244/1994 (pdf) um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta ofl. skv. ákvæðum EES-samningsins.

Þeir sem lokið hafa námi í ljósmóðurfræðum í löndum utan EES-svæðisins geta einnig fengið starfsleyfi á Íslandi að fenginni umsögn ljósmæðraráðs, enda sé menntun þeirra metin sambærileg og á Íslandi og kunnátta í töluðu og rituðu íslensku máli talin nægileg.

Fylgiskjöl

  • Umsækjendur með próf frá Háskóla Íslands eða Ljósmæðraskóla Íslands þurfa að skila inn staðfestu ljósriti af prófskírteini ásamt undirritaðri umsókn um starfsleyfi.


  • Umsækjendur frá landi sem er aðili að samningi um Evrópskt efnahagssvæði þurfa auk staðfests ljósrits af prófskírteini, að skila inn staðfestu ljósriti af starfsleyfi sem og Letter of Good Standing sem staðfestir að viðkomandi hafi ekki verið sviptur starfsleyfi og að námið uppfylli skilyrði tilskipunar EES.

  • Umsækjendur frá löndum utan EES þurfa auk þess að sýna fram á að þeir hafi næga kunnáttu í töluðu og rituðu íslensku máli.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.


Uppfært 21. janúar 2010





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli