Lífeindafræðingar


Starfsréttindi lífeindafræðinga

Réttur til að kalla sig lífeindafræðing og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í lögum nr. 99/1980 um lífeindafræðinga. Starfsleyfi lífeindafræðings er veitt þeim sem lokið hafa prófi í lífeindafræði frá háskóla hér á landi. Einnig er veitt leyfi þeim sem lokið hafa hliðstæðu námi erlendis, sé námið viðurkennt sem slíkt af heilbrigðisyfirvöldum þess lands. Áður en leyfi er veitt þeim sem stundað hafa námið erlendis er leitað umsagnar Félags lífeindafræðinga og háskóla eða háskóladeildar sem menntar lífeindafræðinga.

Umsókn um starfsleyfi lífeindafræðings þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini.

Skilyrði fyrir útgáfu sérfræðileyfa lífeindafræðinga eru tilgreind og skýrð í reglugerð nr. 323/2007 um veitingu sérfræðileyfa í lífeindafræði. Til að öðlast sérfræðileyfi í lífeindafræði þurfa umsækjendur að hafa:

  • Starfsleyfi sem lífeindafræðingur hér á landi.

  • Lokið meistaraprófi (MS gráðu) eða æðri gráðu frá viðurkenndum háskóla eða ígildi þeirrar menntunar.

  • Starfað sem lífeindafræðingur að loknu prófi að jafngildi minnst tveggja ára í fullu starfi við þá sérgrein eða á því sérsviði sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til.

Umsókn um sérfræðileyfi lífeindafræðings þurfa að fylgja vottorð um starfsleyfi, staðfest ljósrit af prófskírteinum og vottorð um starfsreynslu.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöð opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is


Uppfært 21. janúar 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli