Iðjuþjálfar

Starfsréttindi iðjuþjálfa

Réttur til að kalla sig iðjuþjálfa og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í lögum um iðjuþjálfun nr. 75/1977 með síðari breytingum. Um umsækjendur frá Evrópska efnahagssvæðinu gildir reglugerð nr. 244/1994 (pdf), með síðari breytingum um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta o.fl., skv. ákvæðum EES-samningsins.

Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi í iðjuþjálfun á Íslandi eða hliðstæðu námi erlendis, sé námið viðurkennt sem slíkt af heilbrigðisyfirvöldum þess lands. Áður en leyfi er veitt er leitað umsagnar Iðjuþjálfafélags Íslands. Námsbraut í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri og landlæknir leggja mat á nám einstaklinga frá löndum utan EES.

Umsækjendur með próf frá Háskólanum á Akureyri þurfa að skila inn staðfestu ljósriti af prófskírteini sínu þar sem fram koma nafn, kennitala og heiti á prófgráðu.

Umsækjendur sem stundað hafa nám erlendis þurfa auk staðfests ljósrits af prófskírteini að skila inn nákvæmum námslýsingum (á íslensku eða ensku) sem og staðfestu ljósriti af vegabréfi.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is


Uppfært 21. janúar 2010



 



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli