Hnykkjar

Starfsréttindi hnykkja


Réttur til að kalla sig hnykki (kirópraktor) og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 60/1990 um menntun, réttindi og skyldur hnykkja. Reglugerðin er sett samkvæmt lögum nr. 24/1985 um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.

Um umsækjendur frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) gildir reglugerð nr. 244/1994, með síðari breytingum um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta o.fl., skv. ákvæðum EES-samningsins.

Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa a.m.k. 4. ára námi í hnykkingum (kirópraktik) auk 12 mánaða verklegs náms. Áður en leyfi er gefið út er leitað umsagnar Kírópraktorafélags Íslands.

Undirritaðri umsókn um starfsleyfi hnykkis þurfa að fylgja staðfest ljósriti af prófskírteini og upplýsingar um námið, þ.e. ýtarlegar námskeiðslýsingar á íslensku eða ensku.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.


Uppfært  21. janúar 2010

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli