Hjúkrunarfræðingar
Starfsréttindi hjúkrunarfræðinga
Rétt til að kalla sig hjúkrunarfræðing og stunda hjúkrun hér á landi hafa þeir einir sem fengið hafa leyfi landlæknis (áður heilbrigðisráðherra), eins og greinir í hjúkrunarlögum nr. 8/1974 með síðari breytingum.
Um umsækjendur frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) gildir reglugerð nr. 244/1994 með síðari breytingum, um staðfestingu starfsleyfa nokkurra heilbrigðisstétta o.fl. skv. ákvæðum EES-samningsins.
Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi í hjúkrunarfræðum frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri.
Hjúkrunarfræðingar sem lokið hafa prófi og fengið hjúkrunarleyfi í landi, sem er aðili að samningi um EES eða stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu, geta fengið staðfestingu landlæknis á hjúkrunarleyfi sínu. Umsækjendum sem lokið hafa prófi í hjúkrunarfræði í löndum utan EES og í Sviss er einnig veitt starfsleyfi hér á landi enda teljist þeir að öðru leyti hæfir, að mati hjúkrunarráðs, og hafi næga kunnáttu í töluðu og rituðu íslensku máli.
- Umsækjendur með próf frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri þurfa að skila inn staðfestu ljósriti af prófskírteini sínu þar sem fram koma nafn, kennitala og heiti á prófgráðu.
- Umsækjendur sem stundað hafa nám innan EES þurfa, auk staðfests ljósrits af prófskírteini, að skila inn staðfestu ljósriti af þarlendu starfsleyfi (ef það er til staðar), staðfestu ljósriti af vegabréfi og Letter of Good Standing (gildistími þrír mánuðir) sem staðfestir að nám viðkomandi uppfylli skilyrði EES og ennfremur að viðkomandi hafi ekki verið sviptur leyfi.
- Umsækjendur sem stundað hafa nám utan EES og Sviss þurfa að auki að skila inn vottorði um íslenskukunnáttu og námslýsingar á íslensku eða ensku.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is
Uppfært 21. janúar 2010