Geislafræðingar
Starfsréttindi geislafræðinga
Réttur til að kalla sig geislafræðing og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 185/2001 um geislafræðinga.
Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa prófi í geislafræði á Íslandi eða hliðstæðu námi erlendis, sé námið viðurkennt sem slíkt af heilbrigðisyfirvöldum þess lands. Áður en leyfi er veitt er leitað umsagnar landlæknis og félags geislafræðinga á Íslandi.
Umsækjendur um starfsleyfi geislafræðings þurfa að skila inn staðfestu ljósriti af prófskírteini. Þeir sem lokið hafa námi erlendis þurfa að auki að skila inn viðurkenningu (á íslensku eða ensku) frá þarlendum heilbrigðisyfirvöldum um að námið uppfylli tilgreind skilyrði.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is
Uppfært 21. janúar 2010