Fótaaðgerðafræðingar
Starfsréttindi fótaaðgerðafræðinga
Réttur til að kalla sig fótaaðgerðafræðing og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 184/1991 um menntun, réttindi og skyldur fótaaðgerðafræðinga. Reglugerðin er sett með stoð í lögum nr. 24/1985 um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta. Um fótaaðgerðafræðinga gilda að öðru leyti reglur læknalaga nr. 53/1988 með síðari breytingum.
Leyfi er veitt þeim sem lokið hafa námi í fótaaðgerðafræði samkvæmt námsskrá sem Landlæknisembættið samþykkir. Leyfi er einnig veitt þeim sem lokið hafa námi í fótaaðgerðafræði frá skólum erlendis, sem viðurkenndir eru af heilbrigðisyfirvöldum viðkomandi lands. Áður en leyfi er veitt er leitað umsagnar landlæknis og Félags íslenskra fótaaðgerðafræðinga.
Undirritaðri umsókn þurfa að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini og upplýsingar um námið þ.e. innihaldslýsingar einstakra námskeiða.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis.Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
ATH. Umsóknareyðublöðin opnast í nýjum glugga.
- Umsókn um starfsleyfi (doc 258 KB)
- Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis (doc 256 KB)
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is
Uppfært 21. janúar 2010