Félagsráðgjafar

Starfsréttindi félagsráðgjafa


Réttur til að kalla sig félagsráðgjafa og starfa sem slíkur hér á landi, er skilgreindur í lögum nr. 95/1990 um félagsráðgjöf, þar sem segir að leyfi skuli veita umsækjanda sem lokið hefur prófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Einnig má veita leyfi umsækjanda sem lokið hefur sambærilegu prófi, að fenginni umsögn Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa og Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands.

Undirritaðri umsókn um starfsleyfi félagsráðgjafa þarf að fylgja staðfest ljósrit af prófskírteini.

Sérfræðileyfi í félagsráðgjöf

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda heilbrigðisráðuneyti ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöð opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is.

Uppfært 21. janúar 2010

 

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli