Áfengis- og vímuefnaráðgjafar

Starfsréttindi áfengis- og vímuefnaráðgjafa

Réttur til að kalla sig áfengis- og vímuefnaráðgjafa og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í reglugerð nr. 974/2006 um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Reglugerðin er sett samkvæmt 2. gr. laga nr. 24/1985 um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.

Fylgiskjöl
Undirritaðri umsókn um starfsleyfi þurfa að fylgja staðfestingar á að umsækjandi uppfylli kröfur um menntun og þjálfun skv. 3. gr. reglugerðar nr. 974/2006. Gögn sem þurfa að fylgja umsókn eru:

  1. Staðfesting á fullu þriggja ára starfi eða 6000 klukkustunda vinnu við áfengis- og vímuefnaráðgjöf á heilbrigðisstofnun.

  2. Staðfesting á 300 klukkustunda fræðslu er lýtur að lyfjafræði vímuefna, vinnutilhögun og faglegri framgöngu í ráðgjafarstarfi og hugmyndafræði og siðfræði áfengislækninga.

  3. Staðfesting á fenginni handleiðslu og leiðsögn af þar til bærum heilbrigðisstarfsmanni í hópstarfi, viðtölum og samráðsfundum, alls 225 klukkustundir. Þar af 75 tímar í beinni handleiðslu

  4. Staðfesting á að hafa lokið prófi í tilskilinni undirbúningsmenntun sbr. 4 gr. reglugerðar nr. 974/2006.

  5. Vottorð um starfshæfni frá faglegum yfirmanni heilbrigðisstofnunar þar sem nám fór fram.

  6. Greinargerð um starfsferil og menntun.

Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

ATH. Umsóknareyðublöð opnast í nýjum glugga.

Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Landlæknisembættinu í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is

 

Uppfært 21. janúar 2010

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli