Lykiltölur um heilsufar, gæði og árangur
Lykiltölur um heilsufar, gæði og árangur í íslenskri heilbrigðisþjónustu
Landlæknisembættið safnar lykiltölum úr íslenskri heilbrigðisþjónustu til að sinna því margþætta hlutverki sínu að hafa eftirlit með þjónustunni, fylgjast með heilsufari og heilbrigði landsmanna og veita heilbrigðisyfirvöldum ráðgjöf um heilbrigðismál, eins og kemur fram í lögum um landlækni.
Slíkar lykiltölur eru skilgreindir mælikvarðar sem varpa ljósi á heilsufar, aðgengi, umfang, afköst, gæði, öryggi og árangur í heilbrigðisþjónustu. Tölurnar geta verið af margvíslegum toga, svo sem starfsemistölur, árangursmælikvarðar eða heilsu- og gæðavísar sem má nýta við stefnumótun, áætlunargerð, eftirlit, ákvarðanatöku og til að efla gæði og öryggi og stuðla þannig að umbótum í heilbrigðisþjónustu.
Einnig má nýta þessa mælikvarða við samanburð heilbrigðisstofnana, bæði innanlands og á milli landa. Við val á mælikvörðum eru eftirfarandi viðmið lögð til grundvallar: Mikilvægi, mælanleiki, áreiðanleiki og réttmæti, samanburðarhæfni og möguleiki til að hafa áhrif til umbóta.
Uppfært 22. desember 2009
Heilsu- og gæðavísar Health and health-care quality indicators
- Heilsu- og gæðavísar Landlæknisembættisins Health and health-care quality indicators
- Heilsu- og gæðavísar Landlæknisembættisins – samanburður við valin OECD lönd. Health and health-care quality indicators – comparison with selected OECD countries