Vistunarmat flutt til Landlæknisembættisins
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 1/2008
Efni: Flutningur vistunarmats til Landlæknisembættisins.
Samkvæmt reglugerð um vistunarmat nr. 1262/2007, sem tók gildi 1. janúar 2008, hefur heilbrigðisráðherra falið landlækni yfirumsjón með framkvæmd vistunarmats á landsvísu. Umsjónin felur í sér leiðbeiningar til vistunarmatsnefnda um upplýsingaöflun og gerð vistunarmats samkvæmt skilgreiningum þess. Landlæknir fer einnig með faglegt eftirlit með störfum vistunarmatsnefnda og hefur umsjón með rekstri, viðhaldi og þróun rafrænnar vistunarskrár. Framkvæmd vistunarmats er hjá vistunarmatsnefndum. Ein vistunarmatsnefnd starfar í hverju heilbrigðisumdæmi fyrir sig.
Landlæknir vill vekja athygli á að upplýsingar um vistunarmat eru á vef embættisins www.landlaeknir.is undir svæðinu Málefni aldraðra. Þar má einnig finna aðsetur vistunarmatsnefnda auk umsóknareyðublaða, m.a. beiðni um vistunarmat. Hægt er að fylla eyðublöðin út rafrænt, en enn sem komið er þarf að prenta þau út, undirrita og póstsenda.
Með ósk um gleðilegt ár og góða samvinnu.
Seltjarnarnesi, 23. janúar 2008
Landlæknir
Sent: Heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum,
heilsugæslustöðvum, öldrunarstofnunum og
Samtökum félagsmálastjóra á Íslandi
Uppfært 28. nóvember 2008