Val á fæðingarstað

Dreifibréf Landlæknisembættisins

Nr. 4/2007

Efni: Leiðbeiningar um val á fæðingarstað

Töluverðar breytingar hafa orðið á fæðingarhjálp á Íslandi síðustu áratugina. Fæðingarstöðum úti á landi hefur fækkað til muna og langflestar fæðingar fara fram í Reykjavík. Mæðra- og ungbarnadauði hér á landi er meðal þess lægsta sem þekkist í heiminum, og minnkaði verulega frá öndverðri síðustu öld með öflugri og faglegri mæðravernd, fæðingarhjálp og umönnun nýbura. Miklu skiptir að þessi ávinningur glatist ekki og til að tryggja gæði þjónustunnar áfram og öryggi konu og barns telur Landlæknisembættið ástæðu til að koma á framfæri leiðbeiningum um áhættumat og val á fæðingarstað fyrir þá sem sinna mæðravernd.

Meðfylgjandi eru Leiðbeiningar um val á fæðingarstað. Í leiðbeiningum þessum eru skilgreind fjögur mismunandi þjónustustig frá A til D, þar sem A táknar Landspítala-háskólasjúkrahús og D er fæðingarstaður sem hentar konum aðeins þegar meðganga hefur verið eðlileg og fæðing er talin verða án aukinnar áhættu að mati læknis og ljósmóður. Settar eru fram ábendingar og skilyrði bæði hvað varðar klíníska þjónustu og starfsaðstæður. Leiðbeiningarnar miðast við íslenskar aðstæður en ekki er ákveðið hvaða heilbrigðisstofnanir tilheyra hverju þjónustustigi, heldur er ætlunin að hver staður skilgreini sitt stig miðað við fagþekkingu og aðstæður á hverjum stað.

Tilgangur þessara leiðbeininga er að samræma fagleg viðmið um val á fæðingarstað á grundvelli gagnreyndrar þekkingar. Einnig að huga að hagkvæmni þjónustunnar án þess að öryggi konu og barns sé stefnt í hættu. Leiðbeiningarnar eru settar fram með það í huga að stuðla að upplýstu vali verðandi móður og föður á fæðingarstað.

Ljósmæður og læknar bera ábyrgð á að hafa kynnt sér þessar leiðbeiningar og rætt þær við konuna í meðgönguvernd.

Seltjarnarnesi, 6. nóvember 2007

Landlæknir

Sent heilbrigðisstofnunum, heilsugæslustöðvum, Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri, kvennasviði, Landspítalanum, kvennasviði, Ljósmæðrafélagi Íslands, Félagi fæðinga- og kvensjúkdómalækna
Félagi barnalækna og Félagi heimilislækna.

Uppfært 28. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli