Hreint loft fyrir starfsfólk veitingastaða
| |
Væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum að þann 1. júní 2007 tekur gildi bann við reykingum inni á veitinga- og skemmtistöðum. Fjölmargir eigendur hafa nú þegar annaðhvort gert staði sína reyklausa eða takmarkað reykingar með ýmsu móti. Þetta er gert til að mæta þörfum gesta en ekki síður til að tryggja starfsfólkinu hreint andrúmsloft.
Aðalástæðan fyrir reykingabanninu er að stuðla að góðri heilsu starfsmanna með því að vernda þá fyrir óbeinum reykingum. Nú er vitað að í reyknum sem myndast við bruna tóbaksins er meira af skaðlegum efnum en í þeim reyk sem reykingamaður sogar ofan í sig. Þar sem reykt er innanhúss verður reykmengun því að stærri hluta til úr hinum hættulegri hliðarreyk.
Óbeinar reykingar eru mjög skaðlegar heilsu fólks. Þær geta haft skammtímaáhrif, eins og ertingu í augum og hálsi, en líka alvarlegri áhrif, s.s. auknar líkur á hjartaáfalli, lungnakrabbameini og heilablóðfalli. Óbeinar reykingar eru líka sérstaklega slæmar fyrir þungaðar konur, börn, fólk með astma og öndunarfæravandamál og vandamál í hjarta og æðakerfi.
Starfsfólk veitingahúsa í meiri hættu en aðrir
Starfsfólk veitinga- og skemmtistaða eru í sérstakri hættu þar sem sá hópur er í reykmettuðu umhverfi. Rannsóknir sýna að barþjónar sem ekki reykja eru með svipaða þéttni nikótíns í blóði og fólk sem reykir daglega. Þá sýna rannsóknir einnig að fólk sem vinnur á börum og veitingahúsum er í allt að 50% meiri hættu en aðrir á að fá lungnakrabbamein.
|
|
Landlæknisembættið óskar starfsfólki veitinga- og skemmtistaða til hamingju með að geta notið hreins lofts í vinnu sinn frá og með 1. júní.
Jafnframt minnir embættið á að 31. maí 2007, er alþjóðlegur reyklaus dagur haldinn hátíðlegur víða um heim til að minna almenning á mikilvægi reyklauss umhverfis. Yfirskrift dagsins hér á landi er Dagur án tóbaks, en erlendis er dagsins minnst undir kjörorðinu „Smoke-free inside“.
Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunarfræðingur
Matthías Halldórsson landlæknir
Efnið er að mestu fengið af vef Lýðheilsustöðvar
og birtist sem Hollráð í Morgunblaðinu 30. maí 2007.
Uppfært 5. nóvember 2008