Stoðtækjafræðingar
Starf stoðtækjafræðinga felst í gerð, viðhaldi og eftirliti stoðtækja, en með stoðtæki er átt við vélrænan eða tæknilegan búnað sem er liður í meðferð sjúkdóma eða aðlögunar útlima. Dæmi um slík stoðtæki eru gervilimir sem koma að hluta eða öllu leyti í stað útlims og spelkur sem koma í staðinn fyrir eða laga skerta getu líkamshluta.
Stoðtækjafræðingar starfa á eigin ábyrgð en eru í starfi sínu háðir faglegu eftirliti landlæknis
Stoðtækjafræðingar hafa með sér félagsskap, Félag stoðtækjafræðinga. Formaður þess er Þórir Jónsson stoðtækjafræðingur.
Uppfært 4. nóvember 2008