Saga flokkunarkerfa á Íslandi
Meginhluta 20. aldarinnar var alþjóða sjúkdóma- og dánarmeinaflokkunarkerfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar “International Classification of Diseases” (ICD) eina kóðaða flokkunarkerfið sem notað var hér á landi sem og í nágrannalöndunum. Upp úr 1980 bættist við flokkunarkerfi til skráningar skurðaðgerða og upp úr 1990 bættust við kerfi til skráningar hjúkrunargreininga og –meðferðar.
Skipulögð skráning dánarmeina var fram til 1911 ekki til hér á landi nema skýrslur um voveifleg dauðsföll sem prestar gerðu um leið og aðrar mannfjöldaskýrslur og birtust frá árinu 1850. Regluleg skráning farsótta og dauðsfalla vegna þeirra hófst á Íslandi 1888. Skráning dánarmeina samkvæmt alþjóðlegu flokkunarkerfi var tekin upp á Íslandi árið 1911, sbr. lög nr. 30, 22. júlí 1911 og gaf landlæknir þá út í fyrsta sinn leiðbeiningar um dánarvottorð og dánarskýrslur sama ár.
Frá 1911 til 1940 voru dánarmein birt eftir hinni Íslensku aðalskrá 155 flokka íslenskri sjúkdómaflokkaskrá. Þann 1. janúar 1941 tók gildi hér á landi Dánarmeinaskrá fyrir Ísland . Hún telst vera þýðing á hinni alþjóðlegu dánarmeinaskrá (International Classification of Diseases, ICD), 5. endurskoðun (ICD-5) frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), sem endurskoðuð var í París 1938 (með 200 greiningum). Sjötta endurskoðun hinnar alþjóðlegu dánarmeinaskrár ICD-6 var þýdd og gefin út af Landlæknisembættinu og var í gildi hér á landi frá 1. janúar 1951 til 31. desember 1970. Gildistaka 8. endurskoðunar ICD-8 hér á landi var frá ársbyrjun 1971 og 9. endurskoðun ICD-9 frá ársbyrjun 1982 en fyrir dánarmein árinu fyrr.
Sjöunda endurskoðun hinnar alþjóðlegu flokkunar sjúkdóma og banameina ICD-7 var aldrei innleidd hér á landi nema hjá Krabbameinsfélagi Íslands, við flokkun í Krabbameinsskrá. Vilmundur Jónsson er skráður fyrir þýðingum á ICD-6, Benedikt Tómasson og Júlíus Sigurjónsson eru skráðir fyrir þýðingum á ICD-8. Þegar kom að gildistöku ICD-9 var þýðing takmörkuð við þriggja stafa kóða og skráin ekki gefin út á latínu eins og áður. Benedikt Tómasson bar ábyrgð á þýðingunni en Hrafn Tulinius og Guðjón Magnússon fóru yfir.
Nýjasta endurskoðunin, ICD-10, tók svo gildi hér á landi 1. janúar 1997 en fyrir dánarmein 1. janúar 1996. Var sjúkdómaskráin þá í fyrsta sinn þýdd í heild sinni á íslenska tungu. Ritstjóri íslensku útgáfunnar var Magnús Snædal, málfræðingur, en um þýðinguna sáu auk Magnúsar læknarnir
Flokkun skurðaðgerða
Til skráningar skurðaðgerða var í ársbyrjun 1982 tekið í notkun hér á landi flokkunarkerfi WHO fyrir skurðaðgerðir “International Classification of Procedures in Medicine”, ICPM. Það var í gildi hér á landi þar til 1. janúar 1997 að norræn flokkun aðferða og aðgerða í skurðlækningum, NCSP (Nordic Classification of Surgical Procedures) tók við.
Skráning í heilsugæslu
Á heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum hófst árið 1975 svokölluð Egilsstaðarannsókn, rannsókn á sjúkraskrám fyrir heilsugæslustöðvar og úrvinnslu upplýsinga úr þeim. Markmið rannsóknarinnar var að prófa nýtt sjúkraskrárform fyrir heilsugæslu, prófa notkun samskiptaseðla við skráningu upplýsinga og prófa gagnsemi og hagkvæmni þess að nota tölvu við skráningu, geymslu og úrvinnslu upplýsinga. Vakti þessi vinna athygli út fyrir landsteinana og var styrkt meðal annars af NOMESCO.
Forstöðumaður rannsóknarinnar var Guðmundur Sigurðsson læknir og var niðurstöðum lýst í "Egilsstaðarannsóknin. Sjúkraskrár fyrir heilsugæslustöðvar og tölvufærsla upplýsinga" (Heilbrigðisskýrslur 1980, fylgirit nr.1) og "Skráning á samskiptum í heilsugæslu" (Heilbrigðisskýrslur 1983, fylgiriti nr. 1) auk birtra gagna í erlendum heimildum. Vinna hófst við nýtt skráningarkerfi fyrir heilsugæslu árið 1993 sem var tekið í gildi fyrst árið 1997 (Saga). Í nýlegum útgáfum af skráningarkerfum finnast enn kóðuð flokkunarkerfi yfir tilefni og fleira frá þessum eldri skráningarkerfum.
Skráning hjúkrunar
Vinnuhópur Landlæknisembættisins um skráningu hjúkrunar hefur verið starfandi frá árinu 1986 við að bæta skráningu hjúkrunar og stuðla að markvissari upplýsingasöfnun. Auk þess hefur hópurinn þýtt flokkunarkerfin NANDA hjúkrunargreiningar og NIC hjúkrunarmeðferðir og birt m.a. í Handbók um skráningu hjúkrunar. Þessari vinnu stýrði Vilborg Ingólfsdóttir áður og
Nýverið var birt skýrsla hjá NOMESCO um sögu skráningar í norrænum heilbrigðiskerfum “Health Classifications in the Nordic Countries. Historic development in a national and international perspective 2006” og má sjá nánari útlistun á þróun skráningar á öllum Norðurlöndum.
Uppfært 30. mars 2007