Lífsýnasöfn

Samkvæmt lögum um lífsýnasöfn, nr. 110/2000 er stofnun og starfræksla lífsýnasafns háð leyfi heilbrigðisráðherra. Í 13. grein reglugerðar um vörslu og nýtingu lífsýna í lífsýnasöfnum, nr. 134/2001, er þess jafnframt getið að landlæknir skuli halda skrá yfir þau lífsýnasöfn sem fengið hafa leyfi heilbrigðisráðherra til starfrækslu og að sú skrá skuli vera aðgengileg almenningi á heimasíðu landlæknis.


Lífsýnasöfn sem fengið hafa starfsleyfi af hálfu heilbrigðisráðherra
:


Lífsýnabanki Krabbameinsfélags Íslands  (PDF) 

Lífsýnasafn Íslenskrar erfðagreiningar (PDF) 

Lífsýnasafn Rannsóknastofu í meinafræði við Landspítala - háskólasjúkrahús (PDF) 

Lífsýnasafn rannsóknaverkefna Hjartaverndar (PDF)

Lífsýnasafn Urðar, Verðandi, Skuldar  (PDF)

Lífsýnasafn Vefjarannsóknarstofunnar Álfheimum 74 (PDF) 

Sjá einnig:

Vakin er athygli á að fólk á rétt á að fara fram á að lífsýni úr því, sem hafa verið tekin vegna þjónusturannsókna, séu ekki nýtt til vísindarannsókna síðar eða varðveitt í lifsýnasafni i því skyni.

Hægt er að leggja bann við því með því að fylla út til þess gert úrsagnareyðublað. Úrsagnaeyðublöð fást á þeim stöðum sem taka á móti sýnum til þjónusturannsókna svo og hér á vefsetrinu, sjá nánar í tilkynningu frá landlækni.


Uppfært 4. nóvember 2008

Lífssýni í rannsókn





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli