Málþing um öryggi í heilbrigðisþjónustu

 Sir Liam Donaldson
Málþing um öryggi í heilbrigðiskerfinu var  haldið í febrúar 2007 og aðalfyrirlesari var Sir Liam Donaldson, landlæknir Breta og framkvæmdastjóri verkefnis á vegum WHO, þ.e. Heimssamtök tengd öryggi sjúklinga (World Alliance for Patient Safety).

Sir Liam er þekktur fyrir störf sín og áhuga á málefnum er snerta öryggi í heilbrigðisþjónustu og var mikill fengur að því að fá hann hingað til lands. Heimsókn hans vakti athygli á margvíslegum málum er snerta öryggi í heilbrigðisþjónustu.

Hér fyrir neðan má lesa dagskrá málþingsins og nálgast fyrirlestra íslensku fyrirlesaranna á  málþinginu. PDF-skjölin eru á ensku þar sem málþingið fór fram á þeirri tungu.

 

Setning málþings (PDF)
Matthías Halldórsson, landlæknir

Patient Safety and the World Alliance on Patient Safety
Sir Liam Donaldson, landlæknir Breta og framkvæmdastjóri World
Alliance on Patient Safety hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni

Öryggi sjúklinga í íslensku heilbrigðiskerfi (PDF)
Leifur Bárðarson, yfirlæknir deild gæðamála og innri endurskoðunar, LSH

Öryggi sjúklinga í íslensku heilbrigðiskerfi (PDF)
Laura Sch. Thorsteinsson, verkefnisstjóri Landlæknisembættinu og lektor HÍ

Sýkingavarnir á sjúkrahúsum (PDF)
Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir sýkingavarnadeildar LSH

Samantekt (PDF)
Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur Landlæknisembættinu
 

 
Yfirfarið 2. febrúar 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli