Gæðavísar
Á undanförnum árum hefur verið lögð aukin áhersla á að nota gæðavísa sem mælikvarða til að fylgjast með og meta gæði heilbrigðisþjónustu. Gæðavísar hafa verið m.a. nýttir í alþjóðasamhengi við samanburð á heilbrigðisþjónustu stofnana og landa og til að auka gegnsæi þjónustunnar. Þetta endurspeglast í lögum um landlækni þar sem fjallað er um gæðaþróun og mælikvarða gæða. Segja má að eitt meginhlutverk Landlækniembættisins snúist um gæðaþróun sem eftir orðsins hljóðan miðar að því að efla gæði þjónustunnar.
Þann 5. desember 2008 setti heilbrigðisráðherra reglugerð um gerð gæðavísa sem notaðir eru til að meta gæði og árangur innan heilbrigðisþjónustunnar.
Landlæknisembættið hefur ákveðið að birta árlega yfirlit yfir gæðavísa og heilsuvísa. Þar verður birt yfirlit yfir stöðu heilbrigðismála Íslandi í samanburði við nokkur önnur aðildarlönd Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD. Má sjá umfjöllun um þá í Talnabrunni, janúartölublaði 2008 og janúartölublaði 2009.
Alþjóðlegt samstarf um gæðavísa
Norræna ráðherranefndin hefur frá árinu 2000 látið skipa ýmsa starfshópa til að þróa og velja samanburðarhæfa gæðavísa, m.a. til að bera saman þjónustu Norðurlanda og til að auka gegnsæi. Árið 2003 kom út skýrslan Kvalitetsmåling i sundhedsvæsenet (NHV-rapport 2003:1) og árið 2007 kom út Kvalitesmåling í sundhedsvæsesnet í Norden (TemaNord 2007:519)
Árið 2007 var gefin út skýrsla hjá OECD, Health at a Glance, og má sjá umfjöllun um hana á vef Hagstofu Íslands. Landlæknisembættið hefur tekið þátt í vinnu Norrænu ráðherranefndarinnar og vinnu OECD á þessu sviði.
Vaxandi áhersla er á gæðavísa er snúa að öryggi sjúklinga. Einnig hefur embættið tekið þátt í alþjóðlegu samvinnuverkefni sem miðar að því að meta aðbúnað og heilsufar íbúa á öldrunarstofnunum og nýtingu gæðavísa, sem þessi mæling lætur í té, sjá RAI-mat á öldrunarstofnunum (Resident Assessment Instrument).
Mikilvægt er að þróa gæðavísa fyrir fjölþætt svið heilbrigðisþjónustunnar og hægt er að nýta slíka gæðavísa við eftirlit á heilbrigðisstofnunum. Til að hægt sé að fylgjast með gæðavísunum þarf öfluga skráningu og gagnagrunna. Minna má þó á að gæðavísar eru vísbendingar um gæði en ekki gagnreynd vísindi.
Lesa meira: Fræðsluerindi um gæðavísa (PDF).
Höfundur: Laura Scheving Thorsteinsson verkefnisstjóri gæðamála hjá Landlæknisembættinu.
Gagnlegir vefir um gæðavísa:
Uppfært 20. október 2009