Eftirlit með sjálfstætt starfandi sérfræðingum

 Tól og tæki á skurðstofu

Umtalsverður og vaxandi hluti þeirrar heilbrigðisþjónustu sem veitt er utan sjúkrahúsa er sinnt af sjálfstætt starfandi sérfræðingum. Landlæknisembættið hefur um árabil safnað ítarlegum upplýsingum frá öllum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Gagnasöfnun embættisins frá sjálfstætt starfandi sérfræðingum hefur verið lítil en verið er að efla hana um þessar mundir.

Gögn úr skráningu sjálfstætt starfandi sérfræðinga eru nauðsynleg til þess að hafa yfirsýn yfir þennan þátt heilbrigðisþjónustunnar, hafa þarf yfirsýn yfir heilsufarsvanda þeirra sem nýta þjónustuna og hvaða úrlausnir eru veittar. Meta þarf gæði, afköst, hagkvæmni og árangur veittrar þjónustu.

 

Gæðastaðlar fyrir einkareknar skurðstofur
Í samvinnu við Svæfinga- og gjörgæslulæknafélag Íslands gaf Landlæknisembættið út gæðastaðal fyrir svæfingar og deyfingar á einkareknum skurðstofum sem tók gildi 1. janúar 2004.

Einnig gaf embættið út gæðastaðal fyrir aðgerðir á einkaskurðstofum bæklunarskurðlækna í samvinnu við Íslenka bæklunarlæknafélagið og  ók hann gildi frá 1. janúar 2005.

Báðir þessir staðlar verða endurskoðaðir árið 2009.

Uppfært 2. febrúar 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli