Smokkanotkun

Sumir nota bara smokk þegar þeir eru einhleypir eða í útlöndum. En það geta allir fengið kynsjúkdóma
og oftast vitum við ekki hvort aðrir eru smitaðir. Þeir vita það oft ekki sjálfir og eru
því ekki meðvitaðir um hættuna sem þeir og bólfélagar þeirra eru í. Allir sem taka áhættu
geta smitast af kynsjúkdómum.

Ef þú velur að nota smokk hefurðu valið öruggustu leiðina til að vernda sjálfa/sjálfan þig og
aðra gegn smiti. Það er ekki augnablikið sem á að ákvarða hvort maður ver sig eða ekki í kynlífi.
Það er ákvörðun sem þú sjálf/sjálfur tekur. Við sýnum ekki traust með því að vera kærulaus,
við sýnum traust með því stunda öruggt kynlíf. Öruggt kynlíf er fólgið í því að nota smokk alltaf
í kynlífi, ekki bara stundum, og fara nákvæmlega eftir leiðbeiningum um notkun hans.

Það þarf alltaf að setja smokkinn á áður en slímhúðir snertast, sama hvort um kynmök, munnmök
eða endaþarmsmök er að ræða. Það er einnig mikilvægt að nota smokk allan tímann
meðan á samförum stendur, ekki bara rétt fyrir sáðlát. Kynsjúkdómar geta smitast þó ekki sé
um sáðlát að ræða og auk þess eru töluverðar líkur á þungun. Við skyndikynni ætti alltaf að
nota smokk. Þegar stofnað er til lengri kynna ættu báðir aðilar að fara í skoðun áður en
smokkanotkun er hætt.

  • Smokkar eru eina getnaðarvörnin sem er bæði vörn gegn kynsjúkdómum og getnaði.
  • Smokkar eru til í ýmsum gerðum, litum og bragðtegundum.
  • Til eru sérstakir smokkar fyrir þá sem eru með ofnæmi fyrir latexi.
  • Kvensmokkar geta komið sér vel.
  • Sé notað sleipiefni eru vatnsleysanleg efni best því að fituleysanleg efni, t.d. vaselín
    og olíur, geta skemmt smokkinn.
  • Smokkar fást víða, t.d. í matvöruverslunum, bensínstöðvum og apótekum.

Uppfært 11. mars 2009

Smokkar - eina vörnin gegn kynsjúkdómum.


Smokkurinn –
geðveikt góður!





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli