Hreyfing

 

Góð heilsa er gulli betri. Þeim sígildu sannindum verður ekki á móti mælt. Fyrir 2500 árum gerði Hippokrates sér grein fyrir því að lykillinn að góðri heilsu er fólginn í hollum lífsháttum. Til þess að varðveita heilsu sína þyrfti fólk að gæta að því hvað það legði sér til munns en ekki síður að fá næga og holla hreyfingu. Þetta tvennt í sameiningu, ritaði hinn forni frömuður læknavísindanna, er lífsins elexír.

Nútímalæknavísindi hafa með ítarlegum rannsóknum sýnt fram á sannleiksgildi þessara orða. Regluleg hreyfing og hollt mataræði eru hvorttveggja þættir sem fólk getur sjálft ráðið miklu um og með ástundun þess haft jákvæð áhrif á eigið heilsufar og komið í veg fyrir suma sjúkdóma.

Hreyfing og mataræði voru þess vegna  fyrsta viðfangsefnið á dagskrá hvatningar- og fræðsluverkefnis Landlæknisembættisins sem hóf göngu sína í ársbyrjun 2002 og hefur staðið óslitið síðan þá. Verkefnið fór af stað með átaki í samstarfi við Manneldisráð, sem nú er eitt af sérfræðiráðum Lýðheilsustöðvar, Sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands, Ísland á iði 2002 og Íþróttafræðasetur Kennaraháskóla Íslands á Laugarvatni var þá m.a. haldin ráðstefna um hreyfingarleysi og offitu á Hótel Loftleiðum 21. mars 2002.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) helgaði alþjóðaheilbrigðisdaginn, 7. apríl 2002, hvatningu til allra jarðarbúa um að huga að heilsu sinni og hreyfa sig undir kjörorðinu Agita mundo – Move for Health. Í tilefni dagsins gaf Landlæknisembættið út í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið bæklinginn Hreyfðu þig - njóttu lífsins

Hreyfing og mataræði eru sígild viðfangsefni og hefur Landlæknisembættið halið áfram að bæta við fróðleik um þessi efni á vefsetrinu á undanförnum árum. Við endurskoðun vefsetursins í ársbyrjun 2007  var ákveðið að skipta greinum um þessi efni í tvo efnisflokka til hægðarauka, undir heitunum Hreyfing annars vegar og  hins vegar Mataræði og þyngdin

Greinarnar hafa birst í vikulegum pistlum á síðum Morgunblaðsins, þær elstu birtust sem Hollráð á þemamánuðum Landlæknisembættisins árið 2000. Greinunum er raðað hér fyrir neðan í tímaröð eftir birtingu þeirra í Morgunblaðinu, þeim nýjustu efst.

Uppfært 6. nóvember 2008

 

 

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli