Eldri fréttir
11.3.2010
Nýjar útgáfur flokkunarkerfanna ICD-10, NCSP og NCSP-IS
Landlæknisembættið hefur gefið út á vef sínum nýja útgáfu af Alþjóðlegu flokkunarkerfi sjúkdóma og skyldra heilbrigðisvandamála (ICD-10), Norrænni flokkun aðferða og aðgerða í skurðlækningum (NCSP) og landsútgáfu af Norrænni flokkun aðferða og aðgerða í skurðlækningum (NCSP-IS) fyrir árið 2010 og taka þær gildi nú þegar.Lesa nánar
8.3.2010
CTD – Algengur sjúkdómur meðal Færeyinga
Landlæknisembættið hefur að undanförnu fengið fjölmargar fyrirspurnir vegna sjúkdómsins CTD (Carnitine Transporter Defect), sem er arfgengur efnaskiptasjúkdómur í Færeyjum. Talið er að um það bil einn af hverjum 1000 Færeyingum fái sjúkdóminn.Lesa nánar
1.3.2010
Hættan er ljós: Ungt fólk á ekki að fara í ljósabekki
Nú er að hefjast átak sem beinist að fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki. Þetta er sjöunda árið sem farið er í fræðsluherferð undir slagorðinu „Hættan er ljós“.Lesa nánar
24.2.2010
Talnabrunnur febrúarmánaðar er kominn út
Annað tölublað Talnabrunns á þessu ári er komið út á vef Landlæknisembættisins. Fréttabréfið flytur að þessu sinni talnaefni um kvartanir sem bárust embættinu á árinu 2009 yfir heilbrigðisþjónustu. Einnig er greint frá tölum um vistunarmat fyrir hjúkrunarrými á landinu árið 2009, skipt eftir heilbrigðisumdæmum.Lesa nánar
23.2.2010
Bólusetningarátak gegn svínainflúensu
Heilbrigðisyfirvöld hvetja landsmenn eindregið til þess að láta bólusetja sig gegn svínainflúensu A(H1N1) og verjast á þann hátt nýju áhlaupi veikinnar sem búast má við síðar á þessu ári eða því næsta.Lesa nánar
22.2.2010
Heilbrigðisráðherra heimsækir Landlæknisembættið
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra heimsótti Landlæknisembættið 17. febrúar síðastliðinn ásamt nokkrum embættismönnum ráðuneytisins. Með heimsókninni vildi ráðherra kynna sér starfsemi embættisins og ræða jafnt við starfsmenn og stjórnendur.Lesa nánar
18.2.2010
Börn með ADHD • ekki gera ekki neitt
Samstarfshópurinn Náum áttum heldur fyrsta morgunverðarfund sinn á árinu miðvikudaginn 24. febrúar 2010 á Grand Hóteli í Reykjavík, kl. 8:15–10:00. Efni fundarins er: „Börn með ADHD • ekki gera ekki neitt".Lesa nánar
18.2.2010
Farsóttafréttir eru komnar út
Fyrsta tölublað sjötta árgangs Farsóttafrétta er komið út á vef Landlæknisembættisins. Í fréttabréfinu er að þessu sinni fjallað um sýklalyfjanotkun og ónæmi sýklalyfja og skýrt er frá því að á síðasta ári dró úr notkun sýklalyfja á Íslandi miðað við árin á undan.Lesa nánar
11.2.2010
Getur þú hjálpað þegar á reynir?
112-dagurinn verður haldinn víða um land fimmtudaginn 11. febrúar. Þema dagsins er aðkoma venjulegs fólks að vettvangi slysa, veikinda og áfalla.Lesa nánar
8.2.2010
Landlæknisembættið 250 ára
Á þessu ári fagnar Landlæknisembættið 250 ára afmæli sínu og hefur vefsetur embættisins fengið hátíðarbúning af því tilefni. Landlæknisembættið var stofnað 18. mars 1760 og mun því vera með elstu embættum landsins af veraldlegum toga.Lesa nánar
8.2.2010
Ríflegur helmingur þjóðarinnar orðinn ónæmur fyrir svínainflúensu A(H1N1)
Afar góð viðbrögð Íslendinga skila miklum árangri og hvatt er til þess að þeir, sem ekki hafa látið bólusetja sig, mæti nú til bólusetningar!Lesa nánar
5.2.2010
Áhrif efnahagskreppunnar á heilsu barna
Nýlega hélt Nicholas James Spencer, prófessor emeritus, fyrirlestur fyrir starfsfólk Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar. Þar ræddi hann um hugsanleg áhrif efnahagskreppu á heilsu barna almennt í heiminum en sérstaklega hverju mætti búast við varðandi heilsu þeirra hér á landi í ljósi núverandi efnahagsástands.Lesa nánar
29.1.2010
Talnabrunnur er kominn út
Fyrsta tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðistölfræði, á árinu 2010 er komið út á vef embættisins og hefst þar með útgáfa fjórða árgangs fréttabréfsins. Í Talnabrunni er að þessu sinni skýrt frá ávísunum á lyf við athyglisbresti og ofvirkni árin 2006 til 2009 og greint frá uppfærslum flokkunarkerfa á nýju ári.Lesa nánar
27.1.2010
Vegna yfirlýsingar stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Umsögn Landlæknisembættisins um yfirlýsingu frá stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, dags. 23. janúar 2010, vegna greinargerðar embættisins um mat á stöðu öryggismála varðandi mönnun á Landspítala í janúar 2010.Lesa nánar
20.1.2010
Geðheilbrigði barna - fræðsluefni
Út eru komnir tveir fræðslubæklingar um geðheilbrigði barna, annar ætlaður unglingum og hinn aðstandendum barna og unglinga. Bæklingarnir eru unnir á vegum Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) í samstarfi við Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð.Lesa nánar
14.1.2010
Staða öryggismála varðandi mönnun á Landspítala
Landlæknisembættið hefur sent heilbrigðisráðherra greinargerðina „Mat á stöðu öryggismála varðandi mönnun á Landspítala (LSH) í desember 2009“, sem gerð var að beiðni ráðherrans.Lesa nánar
12.1.2010
Gjald fyrir starfsleyfi hækkað
Gjald fyrir starfsleyfi hækkaði frá og með 1. janúar 2010 í kr. 8.300, en var áður kr. 5.500. Um leið hækkaði gjald fyrir vottorð vegna starfsleyfis í kr. 2.000, úr kr. 1.350.Lesa nánar
12.1.2010
Viðvörun vegna kraftaverkalausnarinnar MMS (Miracle Mineral Solution)
Eitrunarmiðstöð Landspítalans hefur vakið athygli á því að hægt er að kaupa á netinu svokallaða „kraftaverkalausn“ MMS (Miracle Mineral Solution) sem valdið getur alvarlegum veikindum og jafnvel dauða.Lesa nánar
31.12.2009
Nýr landlæknir
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað dr. Geir Gunnlaugsson prófessor landlækni frá 1. janúar næstkomandi, en fimm umsækjendur voru um stöðuna.Lesa nánar
28.12.2009
HIV-sýkingum meðal fíkniefnaneytenda fjölgar
Í Farsóttafréttum þessa mánaðar er vakin athygli á því að af þeim 13 einstaklingum sem til þessa hafa greinst með HIV-sýkingu á árinu 2009 eru fimm Íslendingar með sögu um fíkniefnaneyslu með sprautunotkun í æð. Er það tæp 40% þeirra sem hafa greinst með HIV-sýkingu það sem af er árinu.Lesa nánar
22.12.2009
Desembertölublað Talnabrunns er komið út
Talnabrunnur, fréttabréf landlæknis um heilbrigðistölfræði, er kominn út á vef embættisins. Greint er frá skýrslu OECD um heilbrigðisþjónustu, Health at a Glance 2009, OECD Indicators, sem kom út nýlega, og sagt frá bráðabirgðatölum um samskipti í heilsugæslunni á árinu 2008.Lesa nánar
22.12.2009
Fræðslumynd um líffæragjafir á vefnum
Á vef Landlæknisembættisins hefur verið opnuð ný vefsíða um líffæragjafir. Á síðunni er hægt að opna og skoða fræðslumynd um líffæragjafir á Íslandi sem nefnist „Annað líf“ og var sýnd í Sjónvarpinu fyrir rúmu ári. Í myndinni er fjallað um fyrirkomulag líffæragjafa hér á landi.Lesa nánar
21.12.2009
Farsóttafréttir eru komnar út
Á vef Landlæknisembættisins er komið út síðasta tölublað Farsóttafrétta á þessu ári. Í fréttabréfinu er að greint frá fjölda HIV-sýkinga á árinu 2009 og vaxandi fjölda fíkniefnaneytenda í hópi hinna sýktu. Þá er skýrt frá þróun svínainflúensunnar hér á landi, sem nú er í rénun, og áframhaldandi bólusetningum gegn henni.Lesa nánar
11.12.2009
Nýrri sendingu bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) dreift til heilsugæslustöðva eftir helgi
Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt á mánudag og þriðjudag, 14. og 15. desember, og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju og bólusetja fólk sem skráð hefur sig á biðlista.Lesa nánar
10.12.2009
Klínískar leiðbeiningar um meðferð við langvinnum nýrnasjúkdómi
Á vef Landlæknisembættisins hafa verið gefin út drög klínískra leiðbeininga um greiningu, meðferð og eftirlit einstaklinga með langvinnan nýrnasjúkdóm. Leiðbeiningarnar samdi vinnuhópur á vegum embættisins.Lesa nánar
10.12.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa
Mikið hefur dregið úr inflúensunni. Í síðustu viku (viku 49) greindist samtals 101 einstaklingur með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar.Lesa nánar
9.12.2009
Útgáfa OECD-ritsins Health at a Glance 2009
Efnahags- og framfarastofnunin í París (OECD) gaf í gær út ritið „Health at a Glance 2009, OECD indicators“. Í ritinu má finna áhugaverðar og gagnlegar upplýsingar um heilbrigðismál í 30 aðildarríkjum stofnunarinnar.Lesa nánar
9.12.2009
Skýrsla um almennt eftirlit Landlæknisembættisins og sérstakt eftirlit vegna efnhagsþrenginga
Á vef Landlæknisembættisins er komin út skýrsla um eftirlit embættisins með heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt lögum hefur Landlæknisembættið faglegt eftirlit með starfsemi heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna.Lesa nánar
8.12.2009
Nýr heilsuvefur – fræðsla fyrir börn, unglinga og foreldra
Heilsuvefurinn www.6H.is hefur verið opnaður. Börn úr Fellaskóla opnuðu heilsuvefinn formlega við opnunarathöfn á Grand hóteli 27. nóvember síðastliðinn. Nafnið á vefnum vísar til sex hugtaka sem byrja öll á bókstafnum H.Lesa nánar
8.12.2009
Kynlíf – heilbrigði, ást og erótík
Nýlega kom út bók eftir Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðing, kynfræðing og sérfræðing í klínískri kynfræði, en þau fræði fjalla um greiningu og meðferð kynlífsvandamála.Lesa nánar
Fréttasafn
Fréttasafn
2010
janúar, febrúar, mars.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.