Fréttir
08.12.2009
Kynlíf – heilbrigði, ást og erótík
Nýlega kom út bók eftir Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðing, kynfræðing og sérfræðing í klínískri kynfræði, en þau fræði fjalla um greiningu og meðferð kynlífsvandamála. Bókin ber heitið Kynlíf – heilbrigði, ást og erótík.
Jóna Ingibjörg er brautryðjandi á þessu sviði hér á landi eins og alkunna er. Snemma á ferli sínum starfaði hún hjá Landlæknisembættinu og vann þá m. a. að viðamestu könnun sem gerð hefur verið hér á landi á kynhegðun Íslendinga. Niðurstöður þeirrar könnunar komu út hjá embættinu í tveimur skýrslum árin 1994 og 1998.
Hin nýja bók Jónu Ingibjargar er ætluð almenningi og fagfólki í heilbrigðis- og umönnunarstéttum. Bókin skiptist í 13 kafla og fjallar einn þeirra sérstaklega um heilbrigðisstarfsfólk, hlutverk þess og þjálfun.
Bókin er hin fróðlegasta og skrifuð á máli sem allir skilja. Jóna Ingibjörg tileinkar bókina ömmu sinni og alnöfnu sem lést árið 1992.
Matthías Halldórsson
landlæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar.
2011
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008

2007

2006

2005

2004

2003

2002

2001

2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.