Sjúklingatrygging
Þann 1. janúar 2001 gengu í gildi lög um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000. Tilgangur laganna var að auka bótarétt sjúklinga, sem bíða heilsutjón vegna áfalla í tengslum við meðferð og jafnframt að gera þeim auðveldara fyrir að ná rétti sínum. Ekki þarf að sýna fram á sök eða vanrækslu heilbrigðisstarfsfólks.
Lögin veita sjúklingum í ákveðnum tilvikum rétt til bóta fyrir líkamlegt eða geðrænt tjón sem verður í tengslum við rannsóknir eða sjúkdómsmeðferð á sjúkrahúsi, heilsugæslustöð eða annarri heilbrigðisstofnun, í sjúkraflutningum eða hjá heilbrigðisstarfsmanni sem starfar sjálfstætt og hefur löggildingu landlæknis til starfans. Bætur skal greiða án tillits til þess hvort einhver ber skaðabótaábyrgð samkvæmt reglum skaðabótaréttar.
Lögin ná til fjögurra tjónsatvika:
- Tjón varð vegna þess að ekki var rétt að meðferð staðið.
- Tjón hlaust af bilun eða galla í tækjum eða áhöldum.
- Beita hefði mátt annarri meðferðaraðferð eða tækni.
- Um er að ræða tjón sem hlaust af sýkingu eða öðrum fylgikvilla meðferðar sem ósanngjarnt þykir að sjúklingur beri bótalaust.
Tjón er bótaskylt ef að öllum líkindum má rekja það til einhverra þessara tilteknu atvika. Ef eins er líklegt að tjónið sé óháð meðferðinni er bótaréttur ekki fyrir hendi.
Lögin ná til atvika sem gerðust eftir 1. janúar 2001.
Hvert skal senda tilkynningu um tjón vegna meðferðar?
Þeir sem verða fyrir tjóni vegna meðferðar eða rannsóknar á heilsugæslustöð, sjúkrahúsi eða öðrum heilbrigðisstofnunum sem ríkið á í heild eða að hluta skulu beina kröfu sinni til Sjúkratrygginga Íslands. Eyðublöð er að finna á vefsetri Tryggingastofnunar ríkisins (TR): http://www.tr.is/
Ef um er að ræða tjón í tengslum við rannsókn eða meðferð hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki skal beina kröfunni til þess vátryggingafélags sem tryggir starfsemina.
Sjúkratryggingar Íslands eða vátryggingafélögin, ef þau eiga í hlut, afla gagna og taka síðan afstöðu til þess hvort um sé að ræða bótaskylt tjón. Þegar bótaskylda er viðurkennd fer fram mat á tjóni.
Uppfært 5. febrúar 2009