Kynfræðsla

Á þessari vefsíðu hefur verið safnað saman fræðsluefni um kynlíf og getnaðarvarnir sem Landlæknisembættið hefur gefið út á undanförnum árum. Jafnframt er í valmynd til hægri auðvelt að nálgast annað efni á þessum vef um skyld efni.


Bæklingar:

  • Kynsjúkdómar – Smitleiðir, einkenni, meðferð, forvarnir (PDF, 471 KB)
    Ritstjórn: Sigurlaug Hauksdóttir. Útlit og myndir: Auglýsingastofa Þórhildar.
    Sóttvarnalæknir. 2. prentun, desember 2010.
    (Ath. Upplýsingar um greiningarstaði fyrir kynsjúkdómapróf eru breyttar frá 1. útg. 2009.)


    Bæklingurinn fæst hjá Landlæknisembættinu, en er einnig dreift hjá Ástráði - félagi læknanema, HIV - Ísland - Alnæmissamtökunum  og fleiri aðilum.


  • Leiðbeiningar um getnaðarvarnir (PDF, 885 KB)
      - til að hjálpa þér að velja þá getnaðarvörn sem hentar þér best.
    Reynir Tómas Geirsson læknir og dr. Sóley Bender hjúkrunarfræðingur þýddu og endursömdu.
    Endurskoðuð útgáfa. Október 2008.


  • Börn og alnæmi (PDF), bæklingur gefinn út 1998.  Fæst hjá Landlæknisembættinu.

Sjá einnig: 

Frekari upplýsingar
Á sóttvarnasviði Landlæknisembættisins starfar yfirfélagsráðgjafi, Sigurlaug Hauksdóttir, sem sinnir m.a. forvörnum gegn útbreiðslu HIV, alnæmis og kynsjúkdóma og veitir ráðgjöf.

Geta stofnanir, skólar, fyrirtæki, félög og aðrir staðir óskað eftir fyrirlestri eða fræðslu um þessi efni með því að hafa beint samband við hana með tölvupósti eða í síma. Einnig er hægt að beina til hennar spurningum um HIV, alnæmi og kynsjúkdóma.

Netfang: sigurlaug@landlaeknir.is, sími: 510-1900/510-1941.


Síðast breytt/uppfært 18. janúar 2011

 

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli