Geðheilsa
Geðheilsa felst í hugsunum okkar, tilfinningum og gerðum er við tökumst á við lífið. Hún ræður því einnig hvernig við bregðumst við streitu, tengjumst öðrum og veljum okkur leiðir. Á sama hátt og líkamleg heilsa er geðheilsan mikilvæg á öllum æviskeiðum, frá bernsku og unglingsárum fram á fullorðinsár.
Á stundum hafa allir áhyggjur, eru kvíðnir, leiðir eða finna til streitu. Þegar um geðsjúkdóm er að ræða vilja þessar tilfinningar hins vegar ekki víkja og eru svo áleitnar að þær trufla daglegt líf. Þannig líðan gerir fólki erfitt að hitta vini sína og viðhalda vináttunni, halda vinnunni eða njóta lífsins.
Geðsjúkdómar eru algengir og hrjá um það bil fimmtung allra fjölskyldna. Að þjást af slíkum sjúkdómi er engum að kenna. Geðraskanir – svo sem þunglyndi, fælni, oflæti-þunglyndi, geðklofi og margar fleiri – eru raunverulegir sjúkdómar sem ekki er hægt að reka á brott með viljann að vopni eða óskunum einum. Sem betur fer er oft hægt að lækna þessa sjúkdóma. Lyf og meðferð geta bætt líðan flestra sem þjást af geðsjúkdómum.
Uppfært 12. febrúar 2008