Heilsan
Heilsan er flestum hugleikin, enda segir að „heilbrigður maður eigi sér margar óskir en sjúkur maður aðeins eina“. Hér á landi búum við svo vel að efnahagur er góður, menntunarstig hátt og jöfnuður tiltölulega mikill. Þess vegna er heilsufarið gott miðað við þær þjóðir sem við að öllu jöfnu berum okkur saman við.
Við búum við öfluga og víðtæka heilbrigðisþjónustu og vel menntað fagfólk. Fjölmargar stofnanir veita þjónustu sem miða að því að efla heilsu, fyrirbyggja heilsuvanda, meðhöndla vandamál og endurhæfa fólk til að takast á við lífið.
Heilbrigðisþjónustan gegnir veigamiklu hlutverki í að efla og viðhalda heilsu landsmanna. Heilsugæslan sinnir veigamiklu starfi við heilsuvernd, fræðslu og forvarnir, ásamt því að sinna heilsufarsvanda fólks. Sjúkrahús, endurhæfingarstofnanir og aðrar meðferðarstofnanir leitast við að endurheimta heilsu fólks og gera því kleift að vera virkir þjóðfélagsþegnar. Þá eru ótaldar stofnanir eins og Lýðheilsustöð, Krabbameinsfélagið og Hjartavernd sem sinna ýmis konar heilsueflingar- og forvarnastarfi.
Til að efla og standa vörð um góða heilsu þarf samstarf allra ráðuneyta og stofnana sem undir þau heyra, félagasamtök og fólkið sjálft. Landlæknisembættið hefur allt frá stofnun þess lagt áherslu á að bætt heilsa byggir á samstarfi og samráði
Uppfært 5. nóvember 2008