Vistunarskrá heilbrigðisstofnana
Ábyrgðaraðili: Landlæknir
Vinnsluaðili: Landlæknir
Tilgangur: Að fá yfirlit yfir starfsemi heilbrigðisstofnana, heilsuvanda þeirra sem nýta þjónustu þessara stofnana og þær úrlausnir sem veittar eru. Skráin nýtist til þess að fylgjast með umfangi og notkun þjónustunnar, með tíðni sjúkdóma og aðgerða og til samanburðar milli stofnana og landa.
Innihald: Tiltekin gögn um allar legur á íslenskum heilbrigðisstofnunum frá og með árinu 1999. Gögn um starfsemi dag- og göngudeilda eru enn ófullkomin.
Tímabil: Rafræn skrá frá árinu 1999. Árleg innköllun gagna. Um 50.000 færslur á ári.
Uppruni gagna: Gögnum er safnað árlega frá heilbrigðistofnunum þar sem þau eru skráð í sjúkraskrárkerfi (sjúklingabókhald).
Skráningaratriði: Skráð er m.a. auðkenni sjúkrastofnunar, tímabil legu, sjúkdómsgreiningar, skurðaðgerðir, o.fl. samkvæmt tilmælum landlæknis um lágmarksskráningu vistunarupplýsinga.
Sambærileg eða skyld gagnasöfn: Samskiptaskrá heilgæslustöðva. Sambærilegar skrár eru haldnar á Norðurlöndum.
Úrvinnsla og birting: Töflur um legur og legudaga, sjúkdóma og aðgerðir eru birtar á vef landlæknis. Tölfræði úr vistunarskrá heilbrigðisstofnana er send í alþjóðagagnagrunna.
Saga: Sérstakur gagnagrunnur vistunarupplýsinga var búinn til hjá Landlæknisembættinu árið 2003 en í honum eru hýst gögn aftur til ársins 1999. Fram til ársins 1998 önnuðust þáverandi Ríkisspítalar innslátt af pappírsgögnum frá öllum sjúkrahúsum.
Uppfært 18. desember 2008