Slysaskrá Íslands
Vinnsluaðili: Landlæknir
Tilgangur: Að fá yfirlit yfir öll slys á Íslandi eftir tegundum, aldri, kyni, staðsetningu o.fl. Skráin nýtist til forvarnastarfs og stefnumótunar auk þess sem hún veitir möguleika á ítarlegri rannsóknum á slysum.
Innihald: Lágmarksupplýsingar um slys, um slasaða einstaklinga og eignatjón.
Tímabil: Formleg skráning hófst 1. október 2001 en tölur hafa verið gefnar út frá því í apríl 2002. Skráningaraðilum hefur fjölgað stöðugt frá upphafi skráningar.
Uppruni gagna: Tilteknum gögnum er varpað úr skráningarkerfum þeirra sem taka þátt í skránni, þ.e. sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva, lögreglu, Vinnueftirlits og tryggingafélaga. Skráð er rafrænt í skrána í rauntíma.
Skráningaratriði. Um slysið er skráð: dagsetning, tími, slysaflokkur, sveitarfélag, gata/vettvangur, (GPS-hnit) og athugasemd. Um einstaklinginn er skráð: kennitala, kyn og athugasemd. Um ökutæki er skráð: fastanúmer, eignatjón og athugasemd.
Sambærileg eða skyld gagnasöfn: Öll slys fá einkvæmt atburðarnúmer sem skráist einnig í skráningarkerfi þeirra sem senda gögn í skrána. Við þetta skapast tengsl milli miðlægu skrárinnar, Slysaskrár Íslands, og gagnasafna þeirra sem senda gögn í skrána. Þessi tengsl
Úrvinnsla og birting: Reglubundin úrvinnsla er birt á vef Landlæknisembættisins. Vikulega eru birtar tölulegar upplýsingar um fjölda skráðra slysa í Slysaskrá Íslands. Fyrir hvert skráningarár eru loks birtar ítarlegri tölur. Önnur úrvinnsla er eftir þörfum.
Saga: Með lögum nr. 33/1994 um slysavarnaráð var ráðinu gert að samræma skráningu slysa hér á landi. Landlæknisembættið og slysavarnaráð hafa síðan haft frumkvæði að þeirri samræmingu með gerð og þróun hins miðlæga gagnabanka Slysaskrár Íslands. Formleg skráning hófst í Slysaskrá Íslands 1. október 2001 en tölur eru gefnar út frá 1. apríl 2002. Árið 2003 var því fyrsta heila skráningarárið sem birt var á vefsetri Landlæknisembættisins. Í upphafi voru skráningaraðilar þrír talsins en síðan þá hafa fleiri bæst í hópinn og í nóvember 2008 voru skráningaraðilar orðnir 19 talsins.
Uppfært 18. desember 2008