Samskiptaskrá heilsugæslustöðva

Ábyrgðaraðili:  Landlæknir

 

Vinnsluaðili:  Landlæknir

 

Tilgangur:  Að fá yfirlit yfir starfsemi heilsugæslustöðva, tilefni samskipta við heilsugæslustöðvar, greiningar á heilsuvanda þeirra sem nýta þjónustu þessara stofnana og þær úrlausnir sem veittar eru.  Skráin nýtist til þess að fylgjast með umfangi og notkun þjónustunnar, með tíðni sjúkdóma og úrlausna og til samanburðar milli stofnana og landa.

 

Innihald:  Tiltekin gögn um öll samskipti við allar heilsugæslustöðvar frá og með árinu 2004. Skráin inniheldur upplýsingar um notkun á þjónustu heilsugæslunnar. 

 

Tímabil:  Rafræn skrá frá árinu 2004.  Árleg innköllun gagna. Um 1.500.000 færslur á ári.

 

Uppruni gagna:  Rafrænum gögnum safnað árlega frá heilsugæslustöðvum þar sem þau eru skráð í upplýsingakerfi hverrar stöðvar.

 

Skráningaratriði:  Skráð er m.a. sveitarfélag lögheimilis, heilsugæslustöð, dagsetning samskipta, tegund samskipta, tegund starfsmanns, tilefni, sjúkdómsgreiningar og úrlausnir, skv. tilmælum landlæknis um lágmarksskráningu samskipta.

 

Sambærileg eða skyld gagnasöfn:  Vistunarskrá heilbrigðisstofnana. Sambærilegar skrá er t.d. haldin í Danmörku.

 

Úrvinnsla og birting:  Tölur um fjölda samskipta og önnur úrvinnsla er birt á vef landlæknis. Tölfræði úr samskiptaskrá heilsugæslustöðva er send í alþjóðagrunna.

 

Saga:  Sérstakur gagnagrunnur samskiptaskrár var búinn til hjá Landlæknisembættinu árið 2005 og inniheldur gögn frá árinu 2004. Fram til ársins 2003 safnaði landlæknir tölfræðilegri samantekt frá heilsugæslustöðvum í formi ársskýrslu sem birt var í Heilbrigðisskýrslum.

 

Uppfært 18. desember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli