Ófrjósemisaðgerðaskrá

Ábyrgðaraðili: Landlæknir

 

Vinnsluaðili:  Landlæknir

 

Tilgangur:  Að fylgjast með tíðni ófrjósemisaðgerða á Íslandi eftir tímabilum, aldurshópum o.fl. og bera tíðni saman við önnur lönd. 

 

Innihald:  Tiltekin gögn um allar ófrjósemisaðgerðir á Íslandi frá og með 1998. 

 

Tímabil:  Rafræn skrá frá og með 1998. 

 

Uppruni gagna:  Skráðar eru ákveðnar upplýsingar af umsóknareyðublöðum.

 

Skráningaratriði:  Aldur, sveitarfélag, hjúskaparstaða, forsendur umsóknar, aðgerðarstaður og dagur og tegund aðgerðar.

 

Sambærileg eða skyld gagnasöfn:  Sambærilegar skrár eru haldnar á Norðurlöndum.

 

Úrvinnsla og birting:  Reglubundin úrvinnsla er birt á vef landlæknis.  Tölfræði úr ófrjósemisaðgerðaskrá er send í alþjóðagagnagrunna.

 

Saga: Rafræn skrá um ófrjósemisaðgerðir hefur verið haldin hjá Landlæknisembættinu frá 1998. 

 

Uppfært 24. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli