Krabbameinsskrá
Ábyrgðaraðili: Landlæknir
Vinnsluaðili: Krabbameinsfélag Íslands
Tilgangur: Að safna í eina skrá upplýsingum um öll krabbamein sem greinast á Íslandi. Skránni er ætlað að veita upplýsingar um krabbamein sem nauðsynlegar eru til gæðaeftirlits á heilbrigðisstofnunum auk annarra rannsókna, einkum vísindarannsókna með sérstakri áherslu á faraldsfræðilegar rannsóknir.
Innihald: Tiltekin gögn um öll krabbamein sem greinst hafa á Íslandi frá og með árinu 1955.
Tímabil: Rafræn skrá. Gögn frá og með 1955.
Uppruni gagna: Gögnum er safnað frá sjúkrahúsum, sjálfstætt starfandi sérfræðingum, rannsóknarstofum og úr dánarmeinaskrá.
Skráningaratriði: Skráð er m.a. greiningadagur, á hverju greining byggist, vefjagerð og dánardagur.
Sambærileg eða skyld gagnasöfn: Krabbameinsskrár á Norðurlöndum.
Úrvinnsla og birting: Margvíslegt talnaefni er birt á vef Krabbameinsskrárinnar. Tölfræði úr Krabbameinsskrá Íslands er send í alþjóðagagnagrunna.
Saga: Krabbameinsskrá Íslands var stofnuð 10. maí 1954 og hefur alla tíð síðan skráð þau krabbamein sem greinst hafa á Íslandi. Skráin er lýðgrunduð og er ein elsta krabbameinsskrá sem starfrækt er í heiminum og nær til heillar þjóðar. Hún hóf starfsemi um svipað leyti og krabbameinskrár á hinum Norðurlöndunum. Það var í upphafi að tillögu ýmissa framsýnna manna að þáverandi landlæknir Vilmundur Jónsson mun hafa farið þess á leit við Krabbameinsfélag Íslands að það tæki að sér að skrá öll krabbamein sem greindust á landinu í eina miðlæga skrá. Allar götur síðan hefur Krabbameinsfélagið starfrækt Krabbameinsskrá Íslands fyrir hönd ábyrgðaraðila skrárinnar sem er landlæknir. Um starfræksluna gildir sérstakur samningur milli landlæknis og Krabbameinsfélags Íslands.
Uppfært 18. desember 2008