Fóstureyðingaskrá
Ábyrgðaraðili: Landlæknir
Vinnsluaðili: Landlæknir
Tilgangur: Að fylgjast með tíðni fóstureyðinga á Íslandi eftir tímabilum, aldurshópum o.fl. og bera tíðni saman við önnur lönd. Upplýsingar úr skránni eru leiðbeinandi í forvarnarstarfi.
Innihald: Tiltekin gögn um allar fóstureyðingar á Íslandi frá og með 1984.
Tímabil: Rafræn skrá frá og með 1984.
Uppruni gagna: Skráðar eru ákveðnar upplýsingar af umsóknareyðublöðum.
Skráningaratriði: Aldur, sveitarfélag, staða á vinnumarkaði, hjúskaparstaða, getnaðarvarnir, ástæður fyrir fóstureyðingu, aðgerðarstaður og dagur og tegund aðgerðar.
Sambærileg eða skyld gagnasöfn: Sambærilegar skrár eru haldnar á Norðurlöndum.
Úrvinnsla og birting: Reglubundin úrvinnsla er birt á vef landlæknis. Tölfræði úr fóstureyðingaskrá er send í alþjóðagagnagrunna.
Saga: Skrá um fóstureyðingar hefur verið haldin hjá Landlæknisembættinu frá 1984. Árið 2002 var gerður nýr gagnagrunnur til skráningar og ákveðið að skrá ekki lengur kennitölur einstaklinga í grunninn. Þegar eldri gögn voru flutt í nýju skrána var kennitölum eytt.
Uppfært 24. nóvember 2008