Fæðingaskrá
Ábyrgðaraðili: Landlæknir
Vinnsluaðili: Landspítali (LSH), kvennasvið.
Tilgangur: Að fylgjast með ýmsum mælikvörðum sem snerta fæðingar, s.s. orsökum burðarmálsdauða. Að safna saman tölfræði og bera saman við önnur lönd en skráin nýtist einnig við rannsóknir. Fæðingaská tekur þátt í norrænu samstarfi.
Innihald: Tiltekin gögn um allar fæðingar á Íslandi frá og með árinu 1972.
Tímabil: Rafræn skrá frá og með 1981.
Uppruni gagna: Gögn frá öllum fæðingastöðum á landinu eru send kvennasviði LSH þar sem þau eru skráð í Fæðingaskrá.
Skráningaratriði: Ýmis atriði er varða meðgöngu, fæðingu, vandamál í fæðingu, inngrip og fætt barn. Skráð er m.a. fæðingarstaður og stund, meðgöngulengd, fyrri fæðingar, afbrigði fæðingar, meðferð í fæðingu, þyngd og lengd barna og sjúkdómsgreiningar.
Sambærileg eða skyld gagnasöfn: Sambærilegar skrár eru haldnar á Norðurlöndum.
Úrvinnsla og birting: Fæðingaskráin hefur gefið út ársskýrslu síðan 1995. Tiltekin tölfræði úr fæðingaskrá er birt á vef Landlæknisembættisins. Tölfræði úr fæðingaskrá er send í alþjóðagagnagrunna.
Saga: Skrá um fæðingar og þætti sem þeim tengjast hefur verið haldin á kvennadeild Landspítalans frá árinu 1972 skv. ákvörðun landlæknis. Fram að þeim tíma hafði landlæknir safnað upplýsingum um allar fæðingar í landinu frá héraðslæknum einu sinni á ári. Á árunum 1970-1971 tók Ísland þátt í könnun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á skráningu fæðinga. Í framhaldi af þessu starfi ákvað landlæknir í samvinnu við kvennadeild Landspítalans að taka í notkun nýja fæðingatilkynningu á öllu landinu í ársbyrjun 1972. Það var gert til þess að safna ítarlegri upplýsingum en áður og samræma upplýsingaöflun við nágrannalöndin. Á sama tíma var tilhögun fæðingatilkynninga breytt með þeim hætti að í stað þess að héraðslæknar sendu landlækni árlegar upplýsingar um fæðingar þá var eintak af fæðingaskýrslu sent á kvennadeild Landspítala og átti það að gerast viku eftir fæðinguna. Síðan þá hefur skráning og úrvinnsla gagna verið á vegum deildarinnar og úrvinnsla m.a. send landlækni, sem hefur birt gögn um fæðingar í Heilbrigðisskýrslum. Fæðingaskráning á Íslandi hefur verið færð með rafrænum hætti frá 1981. Frá árinu 1995 hefur fæðingaskráin gefið út vandaða ársskýrslu.
Uppfært 23. desember 2011