Heilbrigðistölfræði

Innan heilbrigðistölfræði er fengist við þau verkefni sem snúa að skráningu heilbrigðisupplýsinga, söfnun, flokkun, úrvinnslu, greiningu og túlkun gagna um heilbrigðismál.

Eitt af meginhlutverkum Landlæknisembættisins er að safna upplýsingum um heilbrigðismál í þeim tilgangi að hafa yfirsýn yfir heilsufar landsmanna og heilbrigðisþjónustu.  Markmið embættisins er að hafa handbærar nýjar, nákvæmar og áreiðanlegar tölulegar upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu sem nauðsynlegar eru til stjórnunar, eftirlits, stefnumörkunar og áætlanagerðar heilbrigðisyfirvalda. Unnið er að þessu markmiði með margvíslegu móti. Mikil áhersla er lögð á samræmda skráningu heilbrigðisstarfsmanna og heilbrigðisstofnana en slíkt eflir gæði skráningar og skilar áreiðanlegri og samanburðarhæfari gögnum. Í öðru lagi er áhersla lögð á gerð og viðhald öflugra gagnagrunna hjá embættinu, til að auðvelda og hraða lögbundinni gagnasöfnun landlæknis, hraða úrvinnslu og birtingu tölfræði og auðvelda aðgengi að upplýsingum. Þá er sjónum mjög beint að því að tryggja öryggi í móttöku, úrvinnslu og annarri meðhöndlun gagna.

Tölur um heilbrigðismál hafa verið birtar í Heilbrigðisskýrslum en útgáfa þeirra á sér langa sögu. Hófst hún árið 1897 með útgáfu á skýrslu fyrir árið 1896. Fram að því, eða allt til ársins 1895 var venjan sú að að yfirlitsskýrslur landlæknis væru sendar heilbrigðisyfirvöldum í Danmörku og útdráttur úr þeim birtur með heilbrigðisskýrslum Dana.

Til þess að koma upplýsingum sem fyrst á framfæri eru þær tölulegu upplýsingar, sem áður voru birtar í Heilbrigðisskýrslum, nú birtar á vef Landlæknisembættisins um leið og þær eru tilbúnar.

Uppfært 20. nóvember 2008





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli