Gæði og öryggi
Gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu eru nú í brennidepli víða um heim. Þessi tvö hugtök eru nátengd, því öryggi þjónustunnar hefur mikil áhrif á gæði hennar. Það er fagleg, lagaleg og siðferðileg skylda heilbrigðsstétta að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu, sbr. lög um heilbrigðisþjónustu, lög um landlækni, lög um réttindi sjúklinga og siðareglur heilbrigðisstétta.
Gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu tengjast ótal þáttum, en undirstaðan er sú menning sem er ríkjandi á hverri stofnun og ræðst hún m.a. af viðhorfum, gildum, reglum, hugmyndafræði og hugsjónum þeirra sem þar starfa.
Gæðaeftirlit
Eitt af hlutverkum Landlæknisembættisins er að hafa eftirlit með starfsemi heilbrigðisstofnana og starfsaðstöðu heilbrigðisstétta. Undir eftirlit landlæknis heyra mörg hundruð rekstrareiningar. Unnið hefur verið að því að gera þetta eftirlit markvissara og skipulagðara. Við úttektir á heilbrigðisstofnunum eru notaðar kannanir meðal notenda heilbrigðisþjónustunnar, stjórnenda og starfsfólks. Einnig er farið yfir fyrirliggjandi tölulegar upplýsingar og kvartanir og kærur og stofnanir heimsóttar.
Aðgerðir til að efla öryggi í heilbrigðisþjónustu
Landlæknisembættinu er kappsmál að efla gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu og hefur í samráði og samvinnu við ýmsa aðila gripið til margvíslegra sértækra aðgerða í þeim tilgangi. Meðal þeirra helstu eru:
- Stefnumörkun heilbrigðisyfirvalda í gæðamálum til ársins 2010. Útg. í apríl 2007 i samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
- Stofnun fagráðs um sjúklingaöryggi
- Gæðaeftirlit
- Gerð klínískra leiðbeininga
- Gæðavísar
- Rekstur gagnasafna
- Sóttvarnir – vöktun og viðbrögð
- Barátta gegn sýkingum sem eiga uppruna í heilbrigðiskerfinu
- Rannsóknir, s.s. úttekt á tíðni óvæntra skaða, á öryggisbrag og könnun á lyfjaatvikum
- Atvikaskráning og viðbrögð við atvikum
- Aðgerðir vegna manneklu
- Málþing um öryggi í heilbrigðisþjónustu
- Vitundarvakning meðal almennings til að efla eigið öryggi í heilbrigðisþjónustu
- Áherslur í heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum
- Faglegar lágmarkskröfur
Sjá einnig:
Mat á stöðu öryggismála varðandi mönnun á Landspítala (LSH) í desember 2009 (PDF)
Greinargerð eftir Önnu Björg Aradóttur, Lauru Scheving Thorsteinsson,
Matthías Halldórsson. Send heilbrigðisráðherra í janúar 2010.
Faglegt eftirlit Landlæknisembættisins. (PDF, 115 KB)
Skýrsla eftir eftir Önnu Björg Aradóttur, Lauru Scheving Thorsteinsson,
Matthías Halldórsson og Sigríði Haraldsdóttur. Útg. í desember 2006.
Gæðaáætlun heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. (PDF)
Útg. 1999.
Uppfært 14. janúar 2010