Eftirlit
Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og lögum um landlækni nr. 41/2007 hefur Landlæknisembættið faglegt eftirlit með heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstéttum. Jafnframt er landlæknir ráðunautur ráðherra og ríkisstjórnar varðandi heilbrigðismál. Einnig er að finna ákvæði um eftirlitshlutverk landlæknis í lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997.
Landlæknisembættið safnar margvíslegum gögnum úr heilbrigðisþjónustu í þeim tilgangi að afla þekkingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu, sinna eftirliti, meta árangur og gera áætlanir um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu og sinnir einnig athugunum að beiðni stjórnvalda.
Landlæknisembættið notar margvíslegar leiðir til að sinna þessum lagaákvæðum og styðst m.a. við gæðaviðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Með eftirlitsstarfi sínu hefur embættið það að leiðarljósi að árangursríkasta leiðin til að bæta gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu er að efla samstarf og samráð við stjórnendur og starfsfólk heilbrigðisstofnana. Undir eftirlit landlæknis heyra mörg hundruð rekstraeiningar.
Sjá einnig
Eftirlit Landlæknisembættisins með heilbrigðisþjónustu. Greinargerð (PDF, 124 KB)
Útg. í desember 2009.
Ritstjórn: Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunarfræðingur og Laura Scheving Thorsteinsson
Uppfært 9. desember 2009